1508
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1508 (MDVIII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Solveig Rafnsdóttir var vígð abbadís í Reynistaðarklaustri.
- Kristín Gottskálksdóttir biskups giftist Þorvarði Erlendssyni lögmanni.
- Finnbogi Jónsson lét af embætti lögmanns norðan og vestan.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- (sennilega) - Ari Jónsson lögmaður (d. 1550).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Andrés Guðmundsson sýslumaður (f. um 1440).
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 4. febrúar - Maxímilían 1. sem stuttu síðar var kjörinn keisari hins Heilaga rómverska ríkis réðst gegn Feneyjum. Hann komst ekki til Rómar eins og hann hafði ætlað sér.
- 6. júní - Feneyingar sigruðu Maximilian keisara í Fríúlí og hann þurfti að sættast á þriggja ára vopnahlé og láta eftir lönd.
- 12. ágúst - Spænski landvinningarmaðurinn Juan Ponce de León kom til Púertó Ríkó.
- 10. desember - Cambrai-bandalagið milli Maximilíans 1. keisara hins Heilaga rómverska ríkis, Júlíusar II páfa, Loðvíks 12. Frakkakonungs og Ferdínands 2. Aragóníukonungs, myndað gegn Feneyingum.
- Desember - Michelangelo Buonarroti hófst handa við að mála Sixtínsku kapelluna.
- Marteinn Lúther varð prófessor í guðfræði við nýstofnaðan háskóla í Wittenberg.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 30. nóvember - Andrea Palladio, ítalskur arkitekt (d. 1580).
- (sennilega) - Jane Seymour, Englandsdrottning, þriðja kona Hinriks 8.
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 27. maí - Ludovico Sforza hertogi af Mílanó (f. 1452).