Akurhæna
Útlit
| Akurhæna | ||||||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Ástand stofns | ||||||||||||||
|
StatusLeastConcern | ||||||||||||||
| Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
| Tvínefni | ||||||||||||||
| Perdix perdix Linnaeus, 1758 |
Akurhæna (fræðiheiti: Perdix perdix) er hænsnfugl sem verpir á ræktarlandi um nær alla Evrópu og í vesturhluta Asíu. Vegna þess hve akurhænan er vinsæll veiðifugl hefur hún verið flutt til annarra landa og er algeng í Norður-Ameríku og sunnanverðu Kanada.
Akurhæna er kúpt á skrokkinn, brún á baki með gráar síður og bringu. Maginn er hvítur með skeifulaga brúnu merki hjá hönum og sumum hænum. Hænurnar verpa allt að 20 eggjum í hreiður á jörðinni. Akurhænur verpa yfirleitt við jaðra kornakra, yfirleitt þar sem vetrarhveiti er ræktað. Hænur og hanar eru svipuð að stærð, en kvenfuglinn er eilítið litdaufari og með minna dökkt merki á maganum.[1]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Svensson, L.; Mullarney, K.; Zetterström, D. (2022). Collins Bird Guide (3. útgáfa). bls. 58–59. ISBN 978-0-00-854746-2.