Joseph Merrick
Joseph Merrick | |
|---|---|
Merrick ca. árið 1889. | |
| Fæddur | Joseph Carey Merrick 5. ágúst 1862 |
| Dáinn | 11. apríl 1890 (27 ára) Whitechapel, London, Englandi |
| Þjóðerni | Enskur |
| Þekktur fyrir | Líkamlega afmyndun vegna hugsanlegs Próteusheilkennis |
Joseph Carey Merrick (5. ágúst 1862 – 11. apríl 1890) var Englendingur sem varð frægur vegna alvarlegrar líkamlegrar afmyndunar sinnar. Merrick var þekktur undir viðurnefninu fílamaðurinn (enska: The Elephant Man), sem var sviðsnafn hans í viðundrasýningu sem hann vann hjá í tvö ár. Merrick settist síðar að á Lundúnaspítalanum í Whitechapel í boði skurðlæknisins Sir Fredericks Treves. Hann varð kunnur í samfélagi broddborgara í Lundúnum og varði tíma sínum í listsköpun, meðal annars í að smíða vönduð smálíkön af byggingum.
Æviágrip
[breyta | breyta frumkóða]Joseph Merrick fæddist árið 1862 í Leicester á Englandi. Sem ungbarn leit hann eðlilega út en fyrstu æviár hans fór að bera á afmyndun sem ágerðist þegar Merrick eltist. Afmyndunin fólst í miklum ofvexti í húð sem olli því að holdið myndaði fellingar, auk þess sem höfuð og útlimir Merricks afmynduðust. Merrick átti erfitt með að finna atvinnu þar sem fólk óttaðist útlit hans, auk þess sem hann átti erfitt með að nota aðra höndina, ganga eða tjá sig.[1]
Þegar Merrick var sautján ára gamall var honum komið fyrir á fátækraheimili. Hann dvaldi þar í fjögur ár en leitaði síðan til manns að nafni Sam Torr, skemmtanastjóra í Leicester. Merrick bauðst til þess að vinna fyrir Torr sem sýningargripur á viðundrasýningu í farandleikhúsi hans. Torr réð Merrick, ferðaðist með hann vítt og breitt um Bretland og kynnti hann sem „fílamanninn“. Á meðan Merrick vann hjá Torr í viðundrasýningunni frétti skurðlæknirinn Sir Frederick Treves af honum. Treves bað um að fá að rannsaka afmyndun Merricks á Lundúnaspítala og flutti síðar fyrirlestur um ástand hans.[1] Treves gaf Merrick nafnspjald sitt og sagði honum að hafa samband við sig ef hann þyrfti á hjálp að halda.[2]
Merrick vann í tvö ár hjá viðundrasýningunni, við betri kjör en hann hafði haft á fátækraheimilinu. Hann missti þessa vinnu árið 1886 þegar viðundrasýningar voru bannaðar á Englandi vegna mótmæla frá kirkjunni og öðrum áhrifamönnum sem töldu þær ekki eiga heima í nútímaþjóðfélagi. Í kjölfarið fór Merrick til Belgíu í von um að halda sýningunum áfram en lögreglan þar stöðvaði þær. Sam Torr gafst upp á rekstri farandleikhússins og lét sig hverfa með mestallt féð sem Merrick hafði safnað saman. Hann útvegaði Merrick þó að endingu miða á báti heim til Englands.[2]
Merrick hrökklaðist aftur til Englands eftir hina misheppnuðu Evrópuför. Lögregla kom að honum örmagna á lestarstöð í London og fann nafnspjald Sir Fredericks Treves í vasa hans. Merrick var því sendur til Treves, sem útvegaði honum samastað í Lundúnaspítalanum í Whitechapel.[3]
Greiða þurfti fyrir dvöl Merricks en þegar saga hans spurðist út í dagblaðagreinum bárust spítalanum háar fjárhæðir frá yfirstéttarfólki sem vildu vera honum innan handar. Merrick öðlaðist aukna samúð lesenda sem höfðu lesið um dapurlega ævi hans. Þegar ný viðbygging við spítalann var vígð af Játvarði, prinsinum af Wales, og Alexöndru prinsessu, heimsóttu þau Merrick í íbúð hans og sendu honum síðar jólakort.[2]
Merrick fékk góða umönnun á sjúkrahúsinu. Á meðan hann dvaldi þar fékkst hann meðal annars við að búa til lítil pappalíkön af byggingum, auk þess sem hann lærði að flétta körfur.[3] Merrick lést í svefni árið 1890 og er talinn hafa kafnað eða hálsbrotnað þegar hann reyndi að sofa liggjandi.[1] Merrick hafði venjulega þurft að sofa sitjandi vegna þess hve þungt afmyndað höfuð hans var.[2]
Orsök afmyndunar Merricks
[breyta | breyta frumkóða]Talið er að afmyndun Merricks hafi stafað af afar sjaldgæfum, meðfæddum sjúkdómi sem nefnist Próteusheilkenni.[1] Sjúkdómurinn veldur of mikilli húðmyndun, ofvexti beina og hnútum og æxlum á líkamanum. Sjaldgæft er að Próteusheilkenni birtist með eins öfgafullum hætti og hjá Joseph Merrick.[2]
Í dægurmenningu
[breyta | breyta frumkóða]Kvikmyndin Fílamaðurinn (The Elephant Man) frá árinu 1980 eftir David Lynch er byggð á ævi Josephs Merrick. John Hurt fór með hlutverk Merricks (sem var ranglega nefndur John Merrick) í myndinni.[3]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- 1 2 3 4 Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir (17. apríl 2012). „Hver var fílamaðurinn og hvaða sjúkdómur hrjáði hann?“. Vísindavefurinn. Sótt 26. maí 2026.
- 1 2 3 4 5 „Fílamaðurinn vakti undrun og ótta allra“. Lifandi vísindi. 19. september 2025. Sótt 26. maí 2026.
- 1 2 3 Árni Þórarinsson (5. júní 1981). „Ljótasti maður heims — eða sá fallegasti?“. Helgarpósturinn. bls. 12–13. Sótt 26. maí 2026.