Kollar
| Kollar | ||||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Glókollur í Japan | ||||||||||||
| Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
|
Kollar eru litlir fuglar af Regulidae ætt. "Regulidae" er dregið af latneska orðinu regulus, sem merkir litli kóngur og vísar til litsterkrar kórónu eða kamps fullorðinna fugla. Það eru sex tegundir í þessari ætt.
Kollar eru meðal minnstu spörfugla, á bilinu 8 til 11 sentimetrar (3,1 til 4,3 in) og vega 6-8 grömm, kynin eru jafnstór. Þeir hafa meðallanga vængi og stél og litla nálarlaga gogga. Fjaðrir eru oftast gráar-grænar. [1]
Tegundir
[breyta | breyta frumkóða]| Mynd | Íslenskt nafn | Vísindalegt nafn | Dreifing |
|---|---|---|---|
| Rauðkollur | Corthylio calendula | Norður-Ameríka. Þrjár undirtegundir. | |
| Gullkollur | Regulus ignicapilla | Evrópa, Suðvestur-Asía, Norður-Vestur-Afríka. Fjórar undirtegundir. | |
| Glitkollur | Regulus madeirensis | Finnst eingöngu á Madeira | |
| Sólkollur | Regulus satrapa | Norður-Ameríka. Fimm undirtegundir. | |
| Logakollur | Regulus goodfellowi | Finnst eingöngu í Taívan | |
| Glókollur | Regulus regulus | Evrópa, Asía. Fjórtán undirtegundir. | |
Mataræði og mataræði
[breyta | breyta frumkóða]Kollar eru afar litlir og með hröð efnaskipti. Þeir þurfa því stöðugt að leita að fæðu til að fá nóga orku. Kollar eru skordýraætur og safna aðallega fæðu sinni af greinum og laufum trjáa.
Lífsferill
[breyta | breyta frumkóða]Hreiður kolla eru litlir snyrtilegir bollar, næstum kúlulaga að lögun, gerðir úr mosa og fléttum sem haldnar eru saman með köngulóarvefjum. Hreiðrin hanga efst í greinum furutrjáa. Þau eru vel einangruð fyrir kulda og eru fóðruð með hári og fjöðrum og nokkrar fjaðrir settar yfir hreiðuropið. Kvenfuglinn verpir 7 til 12 eggjum.. Einstakt einkenni hjá kollum er að egg eru mismunandi að stærð þegar þeim er verpt, fyrstu eggin eru minni en þau sem síðar er verpt.Egg klekjast öll út á sama tíma eftir 15 til 17 daga. Ungarnir dvelja í hreiðrinu í 19 til 24 daga. Kollur eru frjósamar en skammlífar.[2] Dánartíðni fullorðinna glókolla er áætluð yfir 80 prósent á ári og hámarkslífaldur er aðeins sex ár.[3]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Martens, Jochen; Päckert, Martin "Family Regulidae (Kinglets & Firecrests)" pp. 330–349 in Del Hoyo, Josep; Elliott, Andrew; Christie, David A., ritstjórar (2006). Handbook of the Birds of the World, Volume 11: Old World Flycatchers to Old World Warblers. Barcelona, Spain: Lynx Edicions. ISBN 978-84-96553-06-4.
- ↑ Sibly Richard M., Witt, Christopher C., Wright, Natalie A., Venditti, Chris, Jetze, Walter and Brown, James H.; "Energetics, lifestyle, and reproduction in birds" Geymt 19. júlí 2014 í Wayback Machine; in Proceedings of the National Academy of Sciences; 109 (27); pp. 10937-10941
- ↑ In Ricklefs, R.E.; "Sibling competition, hatching asynchrony, incubation period, and lifespan in altricial birds"; in Power, Dennis M. (editor); Current Ornithology. Vol. 11. ISBN 9780306439902