Fara í innihald

Megas

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Megas á Sjómannadaginn í Reykjavík (2011)

Magnús Þór Jónsson (fæddur 7. apríl 1945 í Reykjavík á Íslandi, d. 6. júlí 2026) var íslenskur tónlistarmaður, dægurlagahöfundur, rithöfundur og myndlistarmaður, hann var best þekktur undir listamannsnafninu Megas.

Megas var sonur skáldkonunnar Þórunnar Elfu Magnúsdóttur og Jóns Þórðarsonar kennara og rithöfundar. Magnús Magnússon nafni hans og móðurafi var verkamaður í Reykjavík og sjómaður. Margrét, amma Megasar, var frá Horni í Skorradal en föðurforeldrarnir Snæfellingar.

Megas ólst upp í Norðurmýrinni í Reykjavík og gekk í Austurbæjarskólann og svo í Menntaskólann í Reykjavík, þaðan sem hann lauk stúdentsprófi árið 1965. Þá vann hann um hríð sem gjaldkeri í Landsbankanum, en hélt svo til Noregs til að stunda nám í þjóðháttafræði við Háskólann í Osló.

Megas byrjaði snemma að fást við lagasmíðar og textagerð, lærði á píanó og samdi meðal annars lagið um Gamla sorrí Grána fyrir fermingu. Á gagnfræðaskólaárunum samdi hann menúetta áður en hann hellti sér út í þjóðlagapælingar, keypti sér nótnabók með amerískri alþýðutónlist og lagði sig eftir skandinavískum þjóðlögum. Helstu áhrifavaldar Megasar á æskuárum hans voru Halldór Laxness og Elvis Presley.

Á menntaskólaárunum tók Megas þátt í að mála leiktjöld fyrir hundrað ára afmælissýningu Útilegumannanna eftir Matthías Jochumsson, gerði myndskreytingar í skólablaðið og fékk nokkur ljóða sinna birt í blaðinu og smásögur. Hann hlustaði á klassík, einkum þungmelta tónlist og Bob Dylan sem hafði mikil áhrif á hann. Að loknu stúdentsprófi innritaðist Megas í Háskólann. Þar rakst hann á nafnið Megas í grískri orðabók og ætlaði að nota það sem skáldanafn þegar hann fékk birta eftir sig smásögu í Lesbók Morgunblaðsins. Hann varð að birta söguna undir eigin nafni en notaði listamannsnafnið Megas eftir þetta. [1]

Um jólin 1968 gaf hann út bókina Megas, sem innihélt lögin Dauði Snorra Sturlusonar, Jón Sigurðsson & sjálfstæðisbarátta Íslendinga, Með gati, Ófelía, Ragnheiður biskupsdóttir, Silfur Egils, Um óheppilega fundvísi Ingólfs Arnarsonar, Um skáldið Jónas, Um grimman dauða Jóns Arasonar og Vertu mér samferða inní blómalandið, amma. Stuttu síðar kom út annað heftið og það þriðja árið 1973, sem hét Megas kominn, en fráleitt farinn.

Áður en fyrsta hljómplata hans kom út í Noregi árið 1972 komu út eftir hann þrjú hefti með textum, nótum og teikningum. Þau hétu einfaldlega Megas I (1968), Megas II (1969) og Megas III (1970). Árið 1973 gaf hann heftin þrjú út aftur, endurskoðuð, og bætti fjórða heftinu við, Megas IV. Margt af því efni sem birtist í heftunum átti síðar eftir að rata inn á plöturnar hans.

Á tónlistarferli sínum urðu ein vinsælustu lögin Megasar: Spáðu í mig, Tvær stjörnur, Reykjavíkurnætur og Fatlafól. [2] Hann vann með fjölda listamanna á ferli sínum, þar á meðal: Bubba, Nýdönsk, Spilverk þjóðanna og KUKL.

Viðurkenningar sem hann hlaut á ævinni voru m.a. heiðurslaun listamanna og verðlaun Jónasar Hallgrímssonar fyrir framlag sitt til íslenskrar tungu.[3]

Megas var umdeildur og vakti umtal fyrir líferni sitt og hegðun. Hann um tíma var í sambandi við taílenskan táningsstrák sem hann kom með til Íslands Hann samdi svo lagið Litlir sætir strákar sem vakti umtal. [4] [5]. Kona sem kynntist honum tvítug sakaði hann um kynferðisbrot og að hafa stráð salti í sárið með laginu Litla ljót sem samsvaraði hennar reynslu um atvikið. [6]

Útgefin verk

[breyta | breyta frumkóða]

Hljómplötur

[breyta | breyta frumkóða]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Magnús Þór Jónsson - Megas Ísmús.is
  2. Andlát: Megas Mbl.is, sótt 7. júlí 2026
  3. Megas er látinn Vísir.is, sótt 7. júlí 2026
  4. Fjallað um forboðið samband Megasar við „ladyboy“ Heimildin, 16. apríl 2015
  5. Litlit sætir strákar Glatkistan.is
  6. „Kominn tími til að hann sé opin­beraður“ Vísir, 26. nóvember 2021
  • Þórunn Valdimarsdóttir. 1993. Sól í Norðurmýri: píslarsaga úr Austurbæ. Mál og menning, Reykjavík.
  • Jónatan Garðarsson. 2002. Megas 1972-2002. Æviágrip í bæklingi plötunnar (Kristilega kærleiksblómin spretta í kringum) Hitt og þetta. Íslenskir tónar, Reykjavík.