Moriarty prófessor
| Moriarty prófessor | |
|---|---|
| Persóna úr Sherlock Holmes | |
Myndlýsing eftir Sidney Paget úr fyrstu útgáfu Lokaþáttar. | |
Kom fyrst fram | The Final Problem (1893) |
| Skapari | Arthur Conan Doyle |
| Sögutengdar upplýsingar | |
| Fullt nafn | James Moriarty |
| Starf | Stærðfræðiprófessor (áður) Glæpaforingi |
| Ættingjar | Einn eða tveir bræður[1] |
| Þjóðerni | Breskur |
James Moriarty prófessor er sögupersóna og glæpaforingi sem birtist í sögum Sir Arthurs Conan Doyle sem andstæðingur einkaspæjarans Sherlock Holmes. Conan Doyle skapaði Moriarty aðallega í því skyni að drepa Holmes og binda enda á sögurnar um hann. Moriarty birtist fyrst í smásögunni „Lokaþætti“, sem var gefin út í The Strand Magazine í desember 1893. Hann leikur einnig hlutverk í Dal óttans, síðustu skáldsögunni um Sherlock Holmes, en birtist þar ekki í eigin persónu. Holmes minnist á Moriarty í fimm öðrum sögum: „Auða húsinu“, „Húsameistaranum frá Norwood“, „Hvarfi knattspyrnugarpsins“, „The Adventure of the Illustrious Client“ og „His Last Bow“.
Moriarty er leiðtogi alþjóðlegs glæpahrings sem beitir gáfum sínum til að leggja glæpamönnum til áætlanir og stundum vernd gegn laganna vörðum í skiptum fyrir þjónustufé eða hluta af ávinningi þeirra. Holmes líkir Moriarty við könguló í miðjum vef sínum og kallar hann „Napóleon á sviði glæpanna“, sem var viðurnefni sem rannsóknarlögreglumaður hjá Scotland Yard hafði gefið glæpaforingjanum Adam Worth, sem var ein fyrirmynd Conan Doyle að persónunni. Þótt Moriarty birtist aðeins í tveimur af sögum Conan Doyle hafa síðari uppstillingar og kvikmyndaútgáfur gjarnan veitt honum aukið hlutverk og gert hann að erkióvini Sherlock Holmes.
Persónulýsing
[breyta | breyta frumkóða]Moriarty er miskunnarlaus glæpamaður, eins og sést þegar hann hótar Holmes: „Nægi snilli yðar til að tortíma mér, skuluð þér og tortímast.“[2] Holmes lýsir Moriarty sem voldugum glæpameistara sem geti framið hvaða voðaverk sem honum sýnist án þess að samviskan þjaki hann. Í „Lokaþætti“ kemur fram að Moriarty taki ekki beinan þátt í glæpunum sem hann fremur, heldur skipuleggi hann og leggi á ráðin þannig að glæpir skjólstæðinga sinna heppnist. Það eru einkum miklar gáfur Moriarty sem geri hann svo hættulegan:
| Hann er hámenntaður visindamaður, gæddur frábærri stærðfræðigáfu [...] Hann virtist eiga glæsilega framtíð, en hann hafði illar fýsnir að erfðum tekið, því blóð glæpamannsins rann í æðum hans. Í stað þess að gáfur hans og menntun yrðu þeim fýsnum sterkari, urðu þær til að gera hann enn hættulegri, hugvitssamari og slungnari á því sviði. [...] Hann er Napoleon á sviði glæpanna, Watson. Hann hefur skipulagt og lagt á ráðin um flest þau afbrot, sem enn eru óskýrð í þessari borg og framin hafa verið í seinni tíð.[3] |
Moriarty virðir gáfur Holmes og segir: „Viðureignin við yður hefur orðið til þess að ég ber virðingu fyrir hæfileikum yðar, og ég mun harma það mjög, ef þér neyðið mig til örþrifaráða.“ Hann skipar undirsátum sínum engu að síður margsinnis að koma Holmes fyrir kattarnef. Hann sýnir mikinn skapofsa og reiðist mjög þegar áætlunum hans er hnekkt. Þegar Moriarty veitir Holmes eftirför á lestarstöð ryðst hann í gegnum mannþröng og patar og kallar án þess að skeyta um hvort hann veki á sér athygli.
Conan Doyle skapaði Moriarty gagngert með það í hyggju að drepa Holmes.[4] Líkt og titillinn gaf til kynna átti „Lokaþáttur“ að vera síðasta sagan um Holmes. Doyle vildi þó að Holmes dæi dýrðardauða með því að sigrast á glæpamanni sem væri svo voldugur og hættulegur að öll frekari ævintýri yrðu eins og smámál í samanburði. Sögunni lýkur því þannig að Holmes og Moriarty hrapa báðir niður Reichenbach-fossinn í Sviss eftir lokauppgjör þeirra á milli.
Á endanum leiddu vinsældir Holmes og fjárhagsörðugleikar Doyle hins vegar til þess að Doyle hóf að skrifa sögur um Holmes að nýju. Í næstu sögu um Holmes lét Doyle koma í ljós að Holmes hefði lifað af viðureign sína við glæpameistarann en Moriarty sjálfur var ekki lífgaður við á sama máta. Í Dal óttans, síðustu skáldsögu Doyle um Holmes, birtist Moriarty á ný í hlutverki glæpaforingja en tekið er fram að sagan gerist á undan „Lokaþætti“.[5]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Starrett, Vincent (2016). 221B: Studies in Sherlock Holmes. Pickle Partners Publishing. ISBN 978-1-78720-133-0.
- ↑ Doyle, Conan (1894). „The Adventure of the Final Problem“. McClure's Magazine. 2. bindi. Astor Place, New York: J. J. Little and Co. bls. 104. Sótt 11 október 2016.
- ↑ Arthur Conan Doyle (1982). „Lokaþáttur“. Afrek Sherlock Holmes 2. Sherlock Holmes. 6. bindi. Þýðing eftir Hermann Þórðarson. Reykjavík: Sögusafn heimilanna. bls. 141–142.
- ↑ Stashower, Daniel (1999). Teller of Tales: The Life of Arthur Conan Doyle. New York: Holt. bls. 149. ISBN 978-0805050745.
- ↑ Miller, Ron. „Case Book: Doyle vs. Holmes“. PBS. Afrit af upprunalegu geymt þann 10 febrúar 2001.