Fara í innihald

Pétur 2. Júgóslavíukonungur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Skjaldarmerki Karađorđević-ætt Konungur Júgóslavíu
Karađorđević-ætt
Pétur 2. Júgóslavíukonungur
Pétur 2.
Ríkisár 9. október 1934 – 29. nóvember 1945
Fæddur6. september 1923(1923-09-06)
 Belgrad, Konungsríki Serba, Króata og Slóvena
Dáinn6. nóvember 1970 (47 ára)
 Denver, Colorado, Bandaríkjunum
Konungsfjölskyldan
Faðir Alexander 1.
Móðir María af Rúmeníu
EiginkonaAlexandra af Grikklandi og Danmörku (g. 1944)
BörnAlexander Júgóslavíukrónprins

Pétur 2. (serbókróatíska: Петар II Карађорђевић, Petar II Karađorđević; 6. september 1923 – 6. nóvember 1970) var síðasti konungur Júgóslavíu. Hann tók við krúnunni aðeins ellefu ára gamall eftir að faðir hans, Alexander 1. Júgóslavíukonungur, var myrtur árið 1934. Pétur var hrakinn í útlegð vegna innrásarinnar í Júgóslavíu í apríl 1941. Eftir lok seinni heimsstyrjaldarinnar meinuðu kommúnistar Pétri að snúa aftur til landsins og lögðu formlega niður konungdæmið í nóvember 1945.

Pétur var elsti sonur Alexanders 1. Júgóslavíukonungs og drottningar hans, Maríu af Rúmeníu. Hann tók við konungdómi eftir að faðir hans var myrtur í Marseille árið 1934. Þar sem Pétur var þá ólögráða var ráð ríkisstjóra skipað undir forystu frænda hans, Páls prins.

Seinni heimsstyrjöldin

[breyta | breyta frumkóða]

Árið 1941 sendi Adolf Hitler Júgóslavíu úrslitakosti: Annaðhvort skyldi Júgóslavía gerast aðili að þríveldasamningnum (ásamt Þýskalandi, Ítalíu og Japan) eða standa frammi fyrir innrás. Páll prins gekk að afarkostunum og undirritaði samning sem Þjóðverjar þröngvuðu upp á Júgóslavíu. Þann 27. mars 1941 skipulögðu hershöfðingjarnir Mirković og Simović valdarán gegn Páli með stuðningi Breta og settu Pétur 2. á valdastól þótt hann væri þá aðeins sextán ára.

Pétur lofaði að undirrita þríveldasamninginn til að fyrirbyggja innrás en Þjóðverjar gerðu samt árás bæði á Júgóslavíu og Grikkland án þess að lýsa yfir stríði. Þann 6. apríl 1941 hófust tveggja daga loftárásir á Belgrad sem drápu næstum 17.000 manns. Júgóslavneski herinn var borinn ofurliði af innrásarhernum og af króatískum uppreisnarmönnum undir forystu Ante Pavelić sem veittu honum liðssinni. Zagreb var hertekin 11. apríl, Belgrad 12. apríl, Sarajevó þann 16. og Dubrovnik þann 17., daginn sem Júgóslavía gafst upp. Pétur konungur flúði til Grikklands og þaðan til Kaíró og síðan til Jerúsalem. Hann kom sér síðan fyrir í London ásamt útlagastjórn Júgóslavíu.

Árið 1944, á meðan Pétur var enn í útlegð í London, ákvað hann að kvænast Alexöndru Grikkjaprinsessu, dóttur Alexanders 1. Grikkjakonungs.

Þann 29. nóvember 1945 kaus stjórnlagaráð Júgóslavíu, sem var skipuð meðlimum Kommúnistaflokksins, að víkja Pétri úr embætti og leggja grunninn að stofnun Sósíalíska sambandslýðveldisins Júgóslavíu undir forystu Josip Broz Tito. Pétur neitaði engu að síður að segja formlega af sér og ákvað að flytja til Bandaríkjanna.

Andlát og greftrun

[breyta | breyta frumkóða]

Pétur þjáðist í mörg ár af skorpulifur og lést að endingu á sjúkrahúsi í Denver þann 3. nóvember 1970 eftir að hafa gengist undir misheppnaða lifrarígræðslu. Hann var grafinn í Saint-Sava-klaustrinu í Libertyville í Illinois. Hann varð þar með eini evrópski erfðaeinvaldurinn sem hefur verið grafinn í Bandaríkjunum.[1][2][3][4][5][6]

Einkasonur Péturs, Alexander, erfði kröfu hans að júgóslavnesku krúnunni og síðan að serbnesku krúnunni eftir upplausn Júgóslavíu. Hann flutti til Belgrad ásamt fjölskyldu sinni árið 2001.

Að frumkvæði Alexanders voru jarðneskar leifar Péturs fluttar frá Bandaríkjunum til Serbíu árið 2013 ásamt jarðneskum leifum Alexöndru, Maríu konungsmóður og Andrésar prins, bróður konungsins. Eftir útfararathöfn í Dómkirkju Heilags Mikaels í Belgrad þann 26. maí 2013 var líkamsleifunum komið fyrir í konunglega grafhýsinu Oplenac í suðvesturhluta Serbíu. Athöfnin var kostuð af ríkinu og auk Alexanders voru meðlimir konungsfjölskyldunnar, Irinej, patríarki serbnesku rétttrúnaðarkirkjunnar, Tomislav Nikolić forseti og Ivica Dačić forsætisráðherra viðstaddir.[7]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Scott (18 janúar 2016). „King Peter II of Yugoslavia“. Unofficial Royalty (bandarísk enska). Sótt 15 nóvember 2022..
  2. ↑ „Remains of Yugoslavia's former king returned to Serbia from Libertyville“. Chicago Tribune. Sótt 13 nóvember 2022..
  3. ↑ Milanovic, Stefan (20 janúar 2014). „HM KING PETER II OF YUGOSLAVIA“. The Royal Family of Serbia (bandarísk enska). Sótt 13 nóvember 2022..
  4. ↑ „Only European king buried on U.S. soil goes back home“. NBC News (enska). Sótt 13 nóvember 2022..
  5. ↑ „The Sad Life of Peter II, and the Curious Disinterring of the King of Yugoslavia From Libertyville“. Chicago Magazine (bandarísk enska). Sótt 13 nóvember 2022..
  6. ↑ Press, The Associated (3. mars 2007). „King who died in Denver to be sent home“. The Denver Post (bandarísk enska). Sótt 13 nóvember 2022..
  7. ↑ Funérailles d'État en Serbie pour Pierre II de Yougoslavie Geymt 16. febrúar 2016 í Wayback Machine, Challenges, 26. maí 2013.


Fyrirrennari:
Alexander 1.
Konungur Júgóslavíu
(9. október 1934 – 29. nóvember 1945)
Eftirmaður:
Enginn