Sníkjudýrin
| Sníkjudýrin | |
|---|---|
| 기생충 Gisaengchung | |
Merki myndarinnar. | |
| Leikstjóri | Bong Joon-ho |
| Handritshöfundur |
|
| Söguhöfundur | Bong Joon-ho |
| Framleiðandi |
|
| Leikarar | |
| Kvikmyndagerð | Hong Kyung-pyo |
| Klipping | Yang Jin-mo |
| Tónlist | Jung Jae-il |
| Fyrirtæki | Barunson E&A |
| Dreifiaðili | CJ Entertainment |
| Frumsýning |
|
| Lengd | 132 mínútur[1][2] |
| Land | Suður-Kórea |
| Tungumál | Kóreska Enska |
| Ráðstöfunarfé | ₩13,5 milljarðar |
| Heildartekjur | ₩377,3 milljarðar |
Sníkjudýrin[3] (kóreska: 기생충; Gisaengchung, einnig markaðssett undir enska titlinum Parasite) er suðurkóresk kvikmynd í leikstjórn Bong Joon-ho. Bong skrifaði handritið að myndinni ásamt Han Jin-won. Í aðalhlutverkum birtast Song Kang-ho, Lee Sun-kyun, Cho Yeo-jeong, Choi Woo-shik, Park So-dam, Jang Hye-jin, Park Myung-hoon og Lee Jung-eun. Sníkjudýrin, sem er í senn svartkómedía og spennumynd,[4] fjallar um fátæka fjölskyldu sem tekur sér í laumi bólsetu á heimili ríkari fjölskyldu.
Handrit myndarinnar er byggt á leikriti sem Bong samdi árið 2013.[5] Hann breytti leikritshandritinu síðar í 15 blaðsíðna drög að kvikmynd, sem Han skipti síðan í þrjá hluta. Bong sagðist hafa verið undir áhrifum af kóresku kvikmyndinni Hanyeo (Vinnukonan) frá árinu 1960 og af sakamáli Christine og Léu Papin frá fjórða áratugnum, sem snerist um franskar húsþernur sem dæmdar voru fyrir að myrða konu og dóttur vinnuveitanda síns. Tökur kvikmyndarinnar fóru fram frá maí til september 2018 undir handleiðslu kvikmyndatökumannsins Hong Kyung-pyo,[6] klipparans Yang Jin-mo og tónskáldsins Jung Jae-il.
Sníkjudýrin var frumsýnd 21. maí 2019 á kvikmyndahátíðinni í Cannes og varð þar fyrsta kóreska myndin til að vinna Gullpálmann. Kvikmyndin hlaut mikið lof fyrir leikstjórnina, handritið, leikarana, klippinguna og leikmyndahönnunina. Sníkjudýrin var frumsýnd í Suður-Kóreu í dreifingu CJ Entertainment 30. maí og halaði inn andvirði 258 milljóna bandaríkjadala á heimsvísu[7] með aðeins 11,4 milljóna ráðstöfunarfé.[8][9]
Sníkjudýrin vann Óskarsverðlaunin sem besta kvikmyndin á Óskarsverðlaunahátíðinni árið 2020 og varð fyrsta kvikmyndin á öðru tungumáli en ensku til að vinna þessi verðlaun.[10] Myndin vann þrenn Óskarsverðlaun til viðbótar, fyrir bestu leikstjórnina, besta handritið og sem besta alþjóðlega myndin. Sníkjudýrin er fyrsta suðurkóreska kvikmyndin sem hefur unnið til Óskarsverðlauna og ein af aðeins fjórum sem hefur bæði unnið Gullpálmann og Óskarsverðlaunin sem besta myndin. Myndin vann jafnframt Golden Globe-verðlaunin fyrir bestu erlendu kvikmyndina og BAFTA-verðlaunin fyrir bestu kvikmynd sem er ekki á ensku. Sníkjudýrin varð jafnframt fyrsta kvikmyndin á öðru tungumáli en ensku sem vann Screen Actors Guild-verðlaunin fyrir framúrskarandi leik leikhóps í kvikmynd.
Söguþráður
[breyta | breyta frumkóða]Kim Ki-taek og Chung-sook búa í hálf-niðurgrafinni kjallaraíbúð í Seúl með dóttur þeirra, Ki-jung, og syni þeirra, Ki-woo. Þar sem fjölskyldan á í fjárhagsörðugleikum og vinnur láglaunastörf gefur fjölskylduvinurinn Min-hyuk þeim lukkustein sem á að gefa fyrirheit um auðæfi. Áður en Min-hyuk fer í nám erlendis leggur hann til að Ki-woo ljúgi um hæfni sína til að taka við af sér sem enskukennari Da-hye, dóttur hinnar ríku en auðtrúa Park-fjölskyldu. Min-hyuk treystir Ki-woo þar sem hann er skotinn í Da-hye og vill bjóða henni út þegar hann snýr aftur. Eftir að Ki-jung hjálpar til við að falsa skírteini fyrir hann fer Ki-woo, dulbúinn sem nemandi við Yonsei-háskóla að nafni „Kevin“, að húsi Park-fjölskyldunnar og fær ráðningu hjá fjölskyldumóðurinni frú Park í lok fyrsta kennslutímans.
Kim-fjölskyldan leggur á ráðin að tryggja hverjum og einum fjölskyldumeðlimi starf á heimili Park-fjölskyldunnar undir fölsku nafni. Ki-woo stingur upp á „Jessicu“, sem er í raun Ki-jung, sem listsálfræðingi fyrir ungan son Park-hjónanna, Da-song, sem hefur átt í áfalli síðan hann sá „draug“ í eldhúsinu. Ki-jung klínir síðan sök á einkabílstjóra Park-fjölskyldunnar með því að láta það líta út fyrir að hann hafi stundað kynlíf í bílnum. Þetta leiðir til þess að hann er rekinn og Ki-taek er ráðinn í hans stað. Kim-fjölskyldan notfærir sér síðan ferskjuofnæmi húsþernunnar Moon-gwang til að telja frú Park trú um að Moon-gwang sé með berkla og Chung-sook er ráðin í hennar stað. Á sama tíma verða Ki-woo og Da-hye kærustupar.
Á meðan Park-fjölskyldan fer í útileiguferð nýtur Kim-fjölskyldan munaðar heimilisins þegar Moon-gwang birtist skyndilega við dyrnar og segist hafa gleymt einhverju í kjallaranum. Hún fer inn um leynilegan inngang að neðanjarðarbirgi sem arkitekt og fyrri eigandi hússins byggði en hélt leyndu fyrir Park-fjölskyldunni. Í ljós kemur að eiginmaður Moon-gwang, Geun-sae, er í felum fyrir lánadróttnum sínum í birginu og að hann var „draugurinn“ sem Da-song sá þegar Geun-sae hætti sér út úr birginu til að hnupla mat. Moon-gwang grátbiður Chung-sook að leyfa Geun-sae að búa þarna áfram í skiptum fyrir reglulegar greiðslur en hinir þrír meðlimir Kim-fjölskyldunnar, sem hlera á samtalið, koma óvart upp um hver þau eru í raun. Moon-gwang tekur upp myndband af þeim og hótar að segja Park-hjónunum frá blekkingarleiknum.
Eftir að Park-hjónin hringja til að segja húshjálpinni að þau ætli að snúa heim á undan áætlun vegna úrhellisrigningar flýtir Kim-fjölskyldan sér að eyða öllum sönnunum fyrir blekkingarleiknum og loka Moon-gwang og Geun-sae inni í neðanjarðarbirginu en Moon-gwang slasast í átökunum. Kim-fjölskyldan kemst undan en skólpvatn flæðir inn í kjallaraíbúðina þeirra vegna úrhellisins og þau neyðast því til að leita skjóls í íþróttasal ásamt öðru fólki á vergangi.
Daginn eftir tekur frú Park skyndiákvörðun um að halda garðveislu fyrir afmæli Da-song. Kim-hjónin hjálpa við skipulagningu teitisins en börn þeirra mæta sem gestir. Ki-woo fer inn í neðanjarðarbirgið með lukkusteininn sinn af óljósum ástæðum. Moon-gwang er þá þegar dauð vegna meiðslanna í slagsmálunum kvöldið áður. Geun-sae lemur Ki-woo með steininum og rotar hann. Geun-sae fer síðan út úr birginu og stingur Ki-jung með eldhúshníf fyrir framan skelfingu lostna veislugestina. Da-song fellur í yfirlið þegar hann sér „drauginn“ aftur. Chung-sook rekur Geun-sae í gegn með grillteini eftir handalögmál milli þeirra. Á meðan Ki-taek hlúir að Ki-jung skipar herra Park honum að keyra með Da-song á sjúkrahús. Ki-taek verður smám saman heitt í hamsi yfir skilningsleysi og forréttindablindu Park-fjölskyldunnar. Hann stingur herra Park með hníf Geun-sae og leggur á flótta.
Nokkrum vikum síðar er Ki-woo að ná sér eftir heilaskurðaðgerð. Þau Chung-sook hafa verið sakfelld fyrir fjársvik og sett á skilorð. Ki-jung er látin úr áverkum sínum og Ki-taek, sem nú er eftirlýstur glæpamaður, er horfinn. Lögregla telur Geun-sae hafa verið heimilislausan mann sem hafi birst í veislunni af tilviljun og enn hefur ekkert verið upplýst um ásetning fyrir morðunum. Ki-woo fylgist í laumi með hinu gamla húsi Park-fjölskyldunnar, sem nú er í eigu erlendrar fjölskyldu, og tekur eftir skilaboðum á morsmáli í ljósum sem sjást að utan. Ki-taek, sem hefur falið sig í birginu, hefur grafið Moon-gwang í garðinum og sendir skilaboð á hverjum degi í von um að Ki-woo sjái þau. Ki-woo, sem enn býr í kjallaraíbúð með móður sinni, skrifar bréf til Ki-taek og heitir því að vinna sér einn dag inn nægt fé til að kaupa húsið og frelsa hann.
Leikarar
[breyta | breyta frumkóða]- Song Kang-ho sem Kim Ki-taek (hangúl: %김기택), fjölskyldufaðir Kim-ættarinnar sem er ráðinn sem einkabílstjóri Park Dong-ik.
- Lee Sun-kyun sem Park Dong-ik (hangúl: %박동익), fjölskyldufaðir og fyrirvinna Park-ættarinnar.
- Cho Yeo-jeong sem Choi Yeon-gyo (hangúl: %최연교), fjölskyldumóðir Park-ættarinnar, indæl en trúgjörn heimasæta.
- Choi Woo-shik sem Kim Ki-woo / „Kevin“ (hangúl: %김기우), sonur Kim-hjónanna sem er ráðinn sem enskukennari Da-hye. Choi sagði um persónuna að hann væri „gáfaður en ekki nógu þróttmikill til að standast próf“.[11]
- Park So-dam sem Kim Ki-jung / „Jessica“ (hangúl: %김기정), dóttir Kim-hjónanna sem er ráðin sem listsálfræðingur Da-song. Hún er heillandi og klók og tekst því betur en ættingjum sínum að aðlagast heimi hinna ríku.
- Jang Hye-jin sem Chung-sook (hangúl: %박충숙), fjölskyldumóðir Kim-ættarinnar sem er ráðin sem húsþerna Park-fjölskyldunnar.
- Lee Jung-eun sem Gook Moon-gwang (hangúl: %국문광), húsþerna Park-fjölskyldunnar, sem vann einnig fyrir fyrri eiganda hússins. Bong Joon-ho hefur sagt að fjallað verði um samband hennar við arkitektinn og „hluta sögu hennar sem gerast á milli atriðanna í myndinni“ í sjónvarpsþáttum.[12]
- Park Myung-hoon sem Oh Geun-sae (hangúl: %오근세), eiginmaður Moon-gwang.
- Jung Ji-so sem Park Da-hye (hangúl: %박다혜), hlédræg táningsdóttir Park-hjónanna.
- Jung Hyeon-jun sem Park Da-song (hangúl: %박다송), sérvitur sonur Park-hjónanna, sem telja hann vera undrabarn í listum.
- Park Keun-rok sem Yoon (hangúl: %_윤), einkabílstjóri Park Dong-ik.
- Park Seo-joon sem Min-hyuk (hangúl: %_민혁), fjölskylduvinur Kim-ættarinnar.[13]
- Jung Yi-seo sem eigandi pítsustaðar sem Kim-fjölskyldan vinnur stuttlega hjá.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „GISAENGCHUNG – Festival de Cannes 2019“. Kvikmyndahátíðin í Cannes. 2019. Afrit af uppruna á 3. september 2019. Sótt 1 janúar 2020. „Country : SOUTH KOREA/Length : 132 minutes“
- ↑ „Parasite // Sníkjudýrin“. Bíó Paradís. 2020. Sótt 21. mars 2026.
- ↑ Edelstein, David (11 október 2019). „Bong Joon-ho's Parasite Is an Acid-Black Comedy That Eats at the Mind“. Vuture. Vox Media. Sótt 3 febrúar 2024.
- ↑ „Parasite international press kit“ (PDF). CJ Entertainment. 2019. Afrit af upprunalegu (PDF) geymt þann 10 janúar 2020. Sótt 1 janúar 2020.
- ↑ „BONG Joon-ho's PARASITE Claims Early Sales“. Korean Film Biz Zone (enska). Afrit af upprunalegu geymt þann 4 febrúar 2019. Sótt 3 febrúar 2019.
- ↑ „Parasite“. Box Office Mojo. IMDb. Afrit af uppruna á 4. desember 2019. Sótt 30 janúar 2021.
- ↑ 영화 '기생충' 흥행 질주...손익분기점 400만명 눈앞. 3 júní 2019. Afrit af uppruna á 26 júní 2019. Sótt 26 júní 2019.
- ↑ D'Alessandro, Anthony (27 apríl 2020). „Small Movies, Big Profits: 2019 Most Valuable Blockbuster Tournament“. Deadline Hollywood. Afrit af uppruna á 28 apríl 2020. Sótt 27 apríl 2020.
- ↑ Hoad, Phil (10 febrúar 2020). „Parasite's best picture Oscar could kickstart a new era of internationalism“. The Guardian. Afrit af uppruna á 18 júní 2020. Sótt 11 júní 2020.
- ↑ Harris, Hunter (16 október 2019). „Parasite's Choi Woo-shik Is Optimistic About the Movie's Overwhelming Ending“. Vulture. Afrit af uppruna á 9. desember 2019. Sótt 23 janúar 2020.
- ↑ Lattanzio, Ryan (23 janúar 2020). „Bong Joon Ho Reveals Epic Plans for 'Parasite' Series as a Six-Hour Movie“. Afrit af uppruna á 24 janúar 2020. Sótt 24 janúar 2020.
- ↑ Park, Bo-ram (25 júlí 2019). „'Rom-com master' Park Seo-joon embraces career-changing role in action horror film“. Yonhap News Agency (enska). Afrit af uppruna á 18. september 2020. Sótt 2. mars 2020.