Talgreining
Talgreining er svið innan máltækni sem þróar aðferðir og tækni til að greina og þýða talað mál yfir í stafrænan texta. Skammstafanir eins og ASR (Automatic Speech Recognition) og STT (Speech to Text) eru einnig notuð um þetta svið. Talgreining samtvinnar þekkingu og rannsóknir úr málvísindum, tölvufræðum og rafmagnsverkfræði.
Talgreinir fyrir íslenskt mál hefur verið þróaður af Google. Annar talgreinir fyrir íslenskt mál hefur verið þróaður í Háskólanum í Reykjavík í samstarfi við Alþingi og er sá talgreinir gefinn út með opnu hugbúnaðarleyfi.[1]
Talgreinirinn Hreimur frá Miðeind er hluti af Málstað, máltæknivef fyrirtækisins. Hreimur getur breytt tal- og myndbandsupptökum í texta eða skjátexta með tímakóðum. Hann getur jafnframt aðgreint mælendur í upptöku ef fleiri en ein rödd koma fyrir (mælendagreining).[2]
Íslenskur talgreinir var tekinn formlega í notkun á Alþingi á Degi íslenskrar tungu 16. nóvember 2019. Talgreinirinn greinir ræður þingmanna.[3]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Hersir Aron Ólafsson (4. mars 2019). „Gefa út íslenskan talgreini með opnu hugbúnaðarleyfi“. visir.is.
- ↑ Miðeind ehf. „Um Hreim“. Sótt september 2026.
- ↑ Ragnhildur Þrastardóttir (16. nóvember 2019). „Talgreinir skrifar ræður alþingismanna (mbl.is)“.