Fara í innihald

Skjáþýðing

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Skjáskot úr myndinni Sagnaleikur (Charade) frá 1963 þar sem tal leikkvennanna Audrey Hepburn og Dominique Minot birtist í texta neðst í mynd.

Skjáþýðing, skjátextaþýðing eða textun er aðferð til að þýða kvikmyndir með því að setja texta á markmálinu inn á myndina neðst eða á sérstaka textavél sem er staðsett undir kvikmyndatjaldinu. Skjátextar eru líka notaðir til að gera kvikmyndir aðgengilegar fyrir heyrnarskerta, en þá er bætt við lýsingu á hljóðum sem skipta máli fyrir framvinduna, eins og ef hurð heyrist opnast en sést ekki í mynd. Skjátextar geta líka innihaldið skýringar á hlutum sem eru ókunnugir áhorfendum. Stundum eru skjátextar hluti af myndinni, eins og í Annie Hall þar sem þeir eru notaðir til að koma hugsunum persónunnar á framfæri.[1]

Skjátextar eru oftast undirbúnir nokkru áður en mynd er sýnd, en mismikill tími getur gefist til verksins þegar um er að ræða frumsýningar á kvikmyndahátíðum til dæmis.[2] Skjátextar innihalda oftast aðeins 2-3 línur af texta, til að þeir taki ekki of mikið pláss frá myndinni, og gefa því yfirleitt nokkuð styttri útgáfu þess sem sagt er. Hver birting er tímasett frá upphafi myndarinnar og skjátextasnið hafa því reiti fyrir inntíma og úttíma, auk textans sem á að birta.[3] Til eru dæmi um skjátexta sem gerðir eru af aðdáendum kvikmynda sem aldrei hafa verið teknar til opinberra sýninga í því landi (fansubs)[4] og skjátexta sem gerðir eru með sjálfvirkri talgreiningu.[5] Í nútímaskjáþýðingum er notast við ýmsar sjálfvirkar aðferðir til að greina klippingar (svo hægt sé að tímasetja birtingar textans miðað við þær),[6] greina ólíka mælendur og stilla lengd birtinga, út frá greiningu á mynd- og hljóðrás.

Áður var algengt að skjátextar væru fastur hluti af myndrásinni þegar myndin var fjölfölduð, til dæmis fyrir útgáfu á VHS-myndbandsspólum. Á kvikmyndahátíðum var stundum notast við textavélar sem sýndu tímasetta texta á sérstökum skjá í kvikmyndasalnum. Annars konar textavél var notuð til að setja textann inn á mynd fyrir sjónvarpsútsendingar. Nú eru mynd og texti yfirleitt sett saman í tölvu á sýningartíma. Með útgáfu mynda á DVD-diskum bauðst áhorfendum í fyrsta sinn að velja texta og talsett hljóð á ólíkum tungumálum. Á streymisveitum er yfirleitt boðið upp á texta og tal á nokkrum ólíkum tungumálum, en misjafnt er hvaða tungumál og hversu mörg hver streymisveita styður.[7]

Í löndum þar sem löng hefð er fyrir kvikmyndaþýðingum með skjátexta hafa skapast vissar hefðir fyrir birtingu þeirra. Þannig getur verið ólíkt milli landa hvort textinn er miðjujafnaður eða vinstrijafnaður, hvort hann birtist án bakgrunns eða með hálfgagnsæjum dökkum bakgrunni, hversu margar línur eru leyfilegar, og þar fram eftir götunum.[8] Eins getur verið munur á skjátexta sem birtist í sjónvarpi og í kvikmyndahúsi.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Scott W. Smith (13. nóvember 2014). „Subtext (with Subtitles)“. Screenwriting from Iowa.
  2. ↑ Tejerina, A. M. (2014). „Subtitling for Film Festivals: process, techniques and challenges“. TRANS: revista de traductología (18): 215–225.
  3. ↑ „Subtitle File Formats: A Comprehensive Overview“. Matesub. 22. janúar 2024.
  4. ↑ M.I.H. McCool (6. október 2025). „The History of Fansubs“. The Pixel Parlor.
  5. ↑ Craig Stewart (1. apríl 2026). „Why high-quality automatic subtitling is harder than it looks“. Phrase.
  6. ↑ „Shot Change Detection“. Closed Caption Creator. Sótt 15.10.2026.
  7. ↑ Hugrún Hanna Stefánsdóttir (2020). Hvað á þetta að þýða? Málstefna í íslenskum fjölmiðlaþýðingum (PDF) (MA thesis). Háskóli Íslands.
  8. ↑ „Standards / Guidelines“. AudioVisual Translators Europe.