Navi Pillay
| Navi Pillay | |
|---|---|
Navi Pillay árið 2014. | |
| Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna | |
| Í embætti 1. september 2008 – 31. ágúst 2014 | |
| Forveri | Louise Arbour |
| Eftirmaður | Zeid bin Ra'ad |
| Persónulegar upplýsingar | |
| Fædd | 23. september 1941 Durban, Suður-Afríku |
| Þjóðerni | Suðurafrísk |
| Maki | Gaby Pillay (g. 1965) |
| Börn | 2 |
| Háskóli | Natal-háskóli (BA, LLB) Harvard-háskóli (LLM, JSD) |
Navanethem „Navi“ Pillay (f. Naidoo; f. 23. september 1941) er suðurafrískur lögmaður sem var mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna frá 2008 til 2014. Pillay er Suður-Afríkumaður af tamílskum uppruna og var fyrsta þeldökka konan til að gegna embætti dómara við yfirrétt Suður-Afríku. Hún hefur einnig verið dómari við Alþjóðlega sakamáladómstólinn og forseti Alþjóðlega stríðsglæpadómstólsins fyrir Rúanda. Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 2026 fyrir störf sín í þágu friðar og alþjóðalaga.
Æviágrip
[breyta | breyta frumkóða]Pillay fæddist árið 1941 í Durban og ólst upp á tíma aðskilnaðarstefnunnar í Suður-Afríku. Árið 1967 varð hún fyrsta konan til að stofna eigin lögmannsstofu í Natal-héraði.[1] Hún var ein fyrsta konan af indverskum uppruna til að starfa sem lögmaður í landinu. Sem lögmaður varði hún baráttufólk gegn aðskilnaðarstefnunni og barðist gegn mismunun í aðbúnaði fanga.[2]
Eftir lok aðskilnaðarstefnunnar varð Pillay dómari við Alþjóðlega stríðsglæpadómstólinn fyrir Rúanda. Þar átti hún þátt í að skapa tímamótafordæmi um viðurkenningu á nauðgun sem þjóðarmorðsverknaði. Hún var síðar dómari við Alþjóðlega sakamáladómstólinn.[2]
Pillay var jafnframt formaður alþjóðlegrar rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðirnar um hernumdu svæðin í Palestínu en lét af því embætti á seinni hluta ársins 2025.[2] Í niðurstöðum sínum í september 2025 komst nefndin að þeirri niðurstöðu að háttsemi Ísraela á Gaza jafngilti þjóðarmorði.[3]
Navi Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 2026. Í tilkynningu um veitingu verðlaunanna sagði Jørgen Watne Frydnes, formaður Nóbelsnefndarinnar, hana fá verðlaunin fyrir framlag sitt í þágu friðar og alþjóðalaga. Hún hefði aukið til muna umfang og áhrif alþjóðalaga og hefði af einstöku hugrekki rutt brautina að víðtækari alþjóðlegri réttarskipan.[4] Nefndin sagðist jafnframt með verðlaunaveitingunni vilja undirstrika að réttarríkið væri undirstaða þess kerfis sem ætti að tryggja frið og leysa deilur án ofbeldis.[5]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Aðalsteinn Kjartansson (9. október 2026). „Navi Pillay fær friðarverðlaun Nóbels“. Heimildin. Sótt 9. október 2026.
- 1 2 3 „Navi Pillay fyrrverandi mannréttindastjóri SÞ hlýtur friðarverðlaun Nóbels“. Upplýsingaskrifstofa Sameinuðu þjóðanna fyrir Vestur-Evrópu. 9. október 2026. Sótt 9. október 2026.
- ↑ Margrét Helga Erlingsdóttir (16. september 2025). „„Markmið ríkisstjórnar Ísraels er augljóst þegar við höldum áfram að verða vitni að tortímingu Palestínumanna"“. Vísir. Sótt 9. október 2026.
- ↑ „Navanethem Pillay hlýtur friðarverðlaun Nóbels“. mbl.is. 9. október 2026. Sótt 9. október 2026.
- ↑ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir (9. október 2026). „Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels“. Vísir. Sótt 9. október 2026.