Anne Carson
Anne Carson | |
|---|---|
Anne Carson, 2024 | |
| Fædd | 21. júní 1950 Toronto, Kanada |
| Þjóðerni | Kanadísk |
| Ríkisfang | Kanada Ísland |
| Störf | Ljóðskáld, ritstjóri, þýðandi og prófessor |
Anne Patricia Carson (fædd 21. júní 1950)[1] er kanadískt ljóðskáld, ritstjóri, þýðandi og prófessor. Árið 2026 hlaut Carson Nóbelsverðlaunin í bókmenntum.[2][3]
Carson stundaði nám í Háskólanum í Torontó og hefur kennt fornfræði, samanburðarbókmenntir og skapandi skrif við háskóla í Bandaríkjunum og Kanada frá árinu 1979, þar á meðal McGill, Michigan-háskólann, New York-háskólann og Princeton-háskólann.
Eftir hana hafa komið út meira en tuttugu ritverk og þýðingar. Carson hefur hlotið Guggenheim og MacArthur-styrki, unnið Lannan-bókmenntaverðlaun, tvenn Griffin Poetry-verðlaun, T. S. Eliot-verðlaunin, Verðlaun prinsessunnar af Astúríu, verðlaun landstjóra Kanada fyrir ljóðagerð á ensku og PEN/Nabokov-verðlaun. Hún var sæmd Kanadaorðunni árið 2005 fyrir framlag sitt til kanadískra bókmennta.
Æskuár og menntun
[breyta | breyta frumkóða]Anne Carson fæddist í Toronto 21. júní 1950.[1] Faðir hennar var bankamaður og hún ólst upp í nokkrum litlum kanadískum borgum.[4] Í menntaskóla kynnti kennari í latínu Carson fyrir heimsmenningu og forngrísku.[5] Hún innritaðist í St. Michael's College við Háskólann í Toronto, hvarf tvisvar frá námi en lauk lauk svo Bachelor of Arts árið 1974, Master of Arts árið 1975 og Ph.D. árið 1981.[6] Hún var einnig eitt ár í grísku bókmenntanámi við Háskólann í St Andrews.[7]
Ritun
[breyta | breyta frumkóða]Carson er menntuð í fornfræði með áhuga á samanburðarbókmenntum, mannfræði, sögu og listum. Carson sameinar hugmyndir og þemu frá mörgum sviðum í skrifum sínum. Hún vísar oft til, og þýðir og tengir við nútímann forngrískar og latneskar bókmenntir – rithöfunda og skáld eins og Æskýlos, Catullus, Evripídes, Hómer, Ibýkos, Mímnermos, Saffó, Símonídes, Sófókles, Stesikhoros og Þúkýdídes. Hún byggir einnig á verkum rithöfunda og hugsuða sem eru nær nútímanum, svo sem Emily Brontë, Paul Celan, Emily Dickinson, Georg Wilhelm Friedrich Hegel, Martin Heidegger, Friedrich Hölderlin, Franz Kafka, John Keats, Gertrude Stein, Simone Weil og Virginia Woolf. Í mörgum bóka hennar blandast saman ljóðlist, ritgerð, prósi, gagnrýni, þýðingar, dramatísk samtöl, skáldskapur og fagrit í mismunandi mæli.
Anne hefur gefið út fjölda ljóðabóka en einnig skáldsögur og enskar þýðingar. Meðal þekktustu verka hennar eru Eros the Bittersweet (1986) og Autobiography of Red (1998).
Fjölskylda
[breyta | breyta frumkóða]Carson er gift listamanninum Robert Currie. Þau hafa unnið saman að bókahönnun og sýningum fyrir Nox og Antigonick.[8]
Í grein í London Review of Books í ágúst 2024 sagði Carson frá því að hún hefði greinst með Parkinsonssjúkdóm.[9]
Tengsl við Ísland
[breyta | breyta frumkóða]Anne Carson kom til Íslands árið 2008 og var þá í nokkra mánuði í gestaíbúð Vatnasafnsins í Stykkishólmi. Hún vann þar að sonnettusveignum Cage A Swallow Can’t You But You Can’t Swallow A Cage Can You (2009) sem hún tileinkar Roni Horn.[10] Frá þeim tíma hefur hún komið margoft til Íslands, flutti svo til Íslands og fékk íslenskan ríkisborgararétt ásamt manninum sínum þann 8. apríl 2022.[11] Hún hefur tekið þátt í íslensku bókmenntasamfélagi, flutt verk sín m.a. á bókmenntahátíð í Reykjavík.[12] Hún hlaut Vigdísarverðlaunin árið 2023 og flutti 6. október 2023 fyrirlesturinn Hesitation (Hik) í Hátíðarsal Háskóla Íslands.[13][14] Árið 2018 kom út hjá Tunglforlaginu tvítyngd ljóðabók Vör/Lip – Naumt skömmtuð sonnettusyrpa eftir Anne myndskreytt af eiginmanni hennar Currie í þýðingu Ingibjargar Sigurjónsdóttur.[15][16] Anne Carson er vinur Ragnars Kjartanssonar og flutti ljóð um hann og myndbandsverk hans Dauðinn er annars staðar við sýningaropnun í Metropolitan-safninu í júní 2019.[17] Carson skrifaði leikrit fyrir verk Ragnars Raw Salon þar sem tíu mínútna atriði er endurtekið í sífellu.[18]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- 1 2 Morra, Linda; McIntosh, Andrew (8 október 2026). „Anne Carson“. The Canadian Encyclopedia (enska). Sótt 9 október 2026.
- ↑ Signýjardóttir, Ástrós; Einarsdóttir, Gréta Sigríður (8 október 2026). „Tilfinningin er klikkuð, segir nýi Nóbelsverðlaunahafinn“. ruv.is. Sótt 8 október 2026.
- ↑ „Nobel Prize in Literature 2026“. NobelPrize.org (bandarísk enska). Nobel Foundation. Sótt 8 október 2026.
- ↑ „Anne Carson“. britannica.com (enska). Sótt 2 júlí 2022.
- ↑ Rae, Ian (27. desember 2001). „Anne Carson“. The Literary Encyclopedia (enska). Sótt 16. september 2020.
- ↑ Ross, Val (23. mars 2001). „Why Anne Carson Can't Leave the Ancient Greeks Alone“. University of Toronto Magazine. Sótt 16. september 2020.
- ↑ Munoz, Theresa (9 október 2013). „Theresa Munoz and Anne Carson at Cove Park“. Scottish Review of Books. Sótt 16. september 2020.
- ↑ —; Currie, Robert; Berkobien, Megan (október 2013). „An interview with Anne Carson and Robert Currie“. Asymptote (enska). Sótt 7 október 2020.
- ↑ Carson, Anne (15 ágúst 2024). „Gloves on!“. London Review of Books (enska).. bindi 46 no. 16. ISSN 0260-9592. Sótt 11 ágúst 2024.
- ↑ Orðin virðast óendanleg (Einar Falur Ingólfsson, Lesbók Morgunblaðsins – 18. apríl 2009 bls 8-9)
- ↑ „Lög um veitingu ríkisborgararéttar“. althingi.is. Sótt 20 nóvember 2022.
- ↑ Hver er Anne Carson? RÚV 8, október 2026 Jóhannes Ólafsson og Birgir Þór Harðarson
- ↑ Guttorms J. Guttormssonar fyrirlestraröðin
- ↑ Anne Carlson, Hesitation (Hik) Fyrirlestur við HÍ 6, október 2023
- ↑ „Morgunblaðið – 150. tölublað (28.06.2018)“. júní 2018.
- ↑ Ég er höfðinglega venjuleg (viðtal Kristínar Ómarsdóttur við Anne Carson, Tímarit Máls og menningar – 3. tölublað (01.09.2018)
- ↑ Sýning Ragnars Kjartanssonar opnuð í Metropolitan safninum, Morgunblaðið 3. júní 2019
- ↑ Aska hins borgaralega leikhúss, Kristján Guðjónsson skrifar um sviðsverkið Raw Salon, Dagblaðið Vísir – DV 11.04.2017